Er svona að gæla við að gera tilraun til að
endurvekja þessa síðu.
Nafnið sem allir Íslendingar ættu að kannast
við eftir frækinn sigur okkar á KA, 6-0, er Ragnar Smári
Guðmundsson, dekurbarnið okkar. Drengurinn
fölnaði og fölnaði þegar honum var tilkynnt að hann
ætti að spila frammi, þá stöðu hefði hann aldrei spilað
í.
Fyrir leik hvíslaði Heimir, frænda Ragga, því
að mér að það væri eitthvað rangt við
þessa formúlu: Ragga =
Markaskorun.
Raggi gerði sér hins vegar lítið fyrir og
setti þrennu áður en Heimir hafði fengið sér sæti á bekknum og
skilst mér að Heimir sé enn að japla á þessum orðum sínum. Eitthvað
fór Ejub að finna til með KA-mönnum og setti Ragga eins langt frá
marki andstæðinganna og hann hugsanlega gat, í bakvörðinn. En þó
var Raggi áfram líklegur. Ellert ákvað
að nýta sér fjarveru hins markagráðuga Ragga Smára og setti þrennu,
þótt minna hafi farið fyrir henni, en tölfræðilega séð er
jafnlíklegt að Ellert skori þrennu og að Raggi setj'ann yfir höfuð.
En þess má til gamans geta að Raggi skallaði boltann, í öðru
markinu, yfir höfuð Santosar í markinu. Áfram hélt Ejub að vorkenna
KA-mönnunum og tók því Ellert út af, þótt enginn varamaður gæti
komið inn á í hans stað.
Annars langaði mig til að rifja upp þessi mörk
hjá Ragga aðeins, þá sérstaklega þriðja markið.
Mark 1: Skot og Raggi tekur
hann með hælnum, à la Riverdance-style.
Mark 2: Sennilega fallegasta
markið í leiknum. Glæsilegur skalli yfir höfuð Santosar í marki KA,
eftir glæsilega fyrirgjöf frá Tryggva, hálfbróður sínum.
Mark 3: Varla hægt að lýsa
því með orðum. Fróðir menn segja að þarna hafi verið um að ræða
eitt alljótasta mark sem sést hefur á Ólafsvíkurvelli. Ég leyfi
myndunum að tala sínu máli:

Ef þið ætlið að spyrja mig hvað maðurinn er að gera á myndinni, þá
eruð þið að spyrja vitlausan mynd, því ég hef ekki hugmynd um það.
Sennilega eitthvað grundfirskt.
Raggi að mála sig út í horn.
Raggi sá ekkert annað í stöðunni en að negla í hornið nær, en þökk
sé skorti á samhæfingu á þessum tímapunkti, þá náði Raggi að setja
hann yfir marklínuna í hornið fjær með tvísparki með innanverðum
hælnum og kom þannig Santos í markinu í opna skjöldu, sem átti ekki
roð í óútreiknanlegt skot Ragnars. Þrennan fullkomnuð og kominn
tími á að setja manninn í bakvörðinn!

Santos í markinu stendur stjarfur í markinu, enda skotið algjörlega
óútreiknanlegt. Raggi reynir að bæta upp ljótleika marksins með
snyrtilegu fagni og tekst vel til.
Þór St.